„Salóme“ eftir Yrsu Rocu Fannberg vann Skjaldborg

Yrsa Roca Fannberg stjórnandi og Helga Rakel Rafnsdóttir framleiðandi fagna eftir verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi.
Yrsa Roca Fannberg stjórnandi og Helga Rakel Rafnsdóttir framleiðandi fagna eftir verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi.

Kvikmynd Yrsu Rocu Fannberg, Salóme, hlaut Einarinn á Skjaldborgarhátíðinni sem lauk í gærkvöldi.

Salóme_posterMyndinni er svo lýst á vef hátíðarinnar:

Listin var mikilvægur hluti æsku minnar og á meðan mamma vefaði eyddi ég mörgum stundum og fylgdist með henni í gegnum þræðina. Í dag er ég komin til Íslands til að fylgjast með henni í annað sinn – til að kvikmynda hana. Við höfum ekki búið undir sama þaki síðan ég var unglingur. Sjálf er ég barnlaus, með þann draum heitastan að búa til bíó. Mamma hefur ekki mikinn áhuga á að vera kvikmynduð. Hér takast ekki aðeins á móðir og dóttir, heldur leikstjóri og viðfangsefni með sinn eigin vilja.

Helga Rakel Rafnsdóttir framleiðir ásamt Marta Andreu og Emelie Carlsson Grass. Stefanía Thors klippti ásamt Nuria Esquerra.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR