Skjárinn áformar að breyta dreifingu á sjónvarpsefni sínu og færa það nær Netflix-leiðinni. Sú leið heitir á mæli innvígðra áskrift að VODþjónustu (e. Subscription Video On Demand eða S-VOD). Netflix-leiðin felur í sér að áhorfendur kaupa áskrift að sjónvarpsefni sem þeir geta horft ótakmarkað á á meðan áskriftin er í gildi.
Fjallað er um málið hér: Viðskiptablaðið – Skjárinn fetar sig nær „Netflix-leiðinni“.