Ólafur Arnalds tilnefndur til BAFTA verðlaunanna fyrir tónlist sína í „Broadchurch“

Ólafur Arnalds tónskáld.
Ólafur Arnalds tónskáld.

Ólafur Arnalds tónskáld hefur verið tilnefndur til BAFTA verðlaunanna fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttunum Broadchurch.

Þættirnir slógu í gegn í Bretlandi og víðar á síðasta ári. Von er á framhaldi þáttanna og verða þeir teknir upp á þessu ári.

Verðlaunin verða afhent í Lundúnum 28. apríl. Broadchurch þættirnir og aðstandendur þeirra eru alls tilnefndir til fimm BAFTA-verðlauna, meðal annars fyrir leikstjórn og handrit auk tónlistarinnar.

Klapptré mælir eindregið með þessum þáttum.

Ólafur semur tónlist fyrir kvikmyndina Vonarstræti í leikstjórn Baldvins Z., sem væntanleg er í maí.

Sjá hér: Tilnefndur til BAFTA verðlaunanna | RÚV.

Sjá lista yfir tilnefnda til BAFTA TV Craft hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR