Ný auglýsing um áfengisnotkun frá leikstjóradúettinum Sam&Gun (Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson) með tónlist Ólafs Arnalds og Don Pedro vekur athygli.
Auglýsingin er framleidd af True North/Hvíta húsinu fyrir Samgöngustofu og Vínbúðina.
Tilefnið er nýleg könnun sem sýnir að einn af hverjum þremur Íslendingum telur í lagi að setjast undir stýri eftir einn drykk.
Skemmst er að minnast annarrar auglýsingar tvíeykisins sem fjallaði um áfengismisnotkun á áhrifaríkan hátt, sjá hér.
Ólafur Arnalds og Don Pedro (Medialux) byggðu á lagi Irving Berlin, Cheek to Cheek (Kinn við kinn) og fengu söngkonu Hjaltalín Sigríði Thorlacius til liðs við sig.
Árangurinn má sjá og heyra hér fyrir neðan.
Sjá nánar hér: One drink is one too many.