![Róbert Douglas til hægri með aðalleikurum This is Sanlitun.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/09/this-is-sanlitun-douglas-ofl.jpg?resize=300%2C199&ssl=1)
Róbert Douglas tilkynnir á Facebook síðu sinni að hann hafi undirritað samning um dreifingu myndar sinnar Svona er Sanlitun (This is Sanlitun) í Kína. Von er á formlegri fréttatilkynningu um málið.
Myndin var tekin upp í Kína og sýnd á Toronto hátíðinni í fyrra og einnig á RIFF. Þá var hún sýnd í kvikmyndahúsum hér í nokkra daga.