„Land Ho!“, amerísk indí mynd tekin upp á Íslandi, sýnd á Sundance

Úr Land Ho! sem tekin var upp hér á landi síðastliðið haust.
Úr Land Ho! sem tekin var upp hér á landi síðastliðið haust.

Bandaríska indí-myndin Land Ho! verður frumsýnd á Sundance hátíðinni sem hefst í dag. Myndin var tekin upp hér á landi síðastliðið haust. David Gordon Green (sem nýlega endurgerði Á annan veg sem Prince Avalanche) er í framleiðendahlutverkinu en leikstjórar eru Aaron Katz og Martha Stephens. Hlín Jóhannesdóttir og Birgitta Björnsdóttir eru meðframleiðendur fyrir Vintage Pictures.

Land Ho! er um tvo gamlingja sem þvælast um Ísland og lenda í ýmsum ævintýrum. Paul Eenhoorn og Earl Lynn Nelson fara með aðalhlutverkin en nokkrir Íslendingar birtast einnig í myndinni, þar á meðal Alice Olivia Clarke (The Good Heart) og Emmsjé Gauti.

Buzzfeed birtir sýnishorn úr myndinni og telur ekki ólíklegt að hún verði ein af forvitnilegustu myndum hátíðarinnar, sjá hér: A First Look At What May Be The Surprise Hit Of This Year’s Sundance Film Festival.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR