Í gær undirrituðu iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu samning um að Íslandsstofa myndi áfram annast umsjón verkefnisins Film in Iceland í samræmi við lög um endurgreiðslu til kvikmynda- og sjónvarpsgerðar frá árinu 2001. Samningurinn gildir til þriggja ára, eða út gildistíma laganna.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsstofu.
Íslandsstofa og forverar hennar, hafa haft umsjón með Film in Iceland verkefninu allt frá samþykkt laganna árið 2001. Hlutverk Íslandsstofu hefur verið að kynna lög um 20% endurgreiðslu af framleiðslukostnaði fyrir erlendum kvikmynda- og sjónvarpsframleiðendum annars vegar og hins vegar að kynna Ísland sem ákjósanlegan tökustað.
Ísland hefur verið vinsæll tökustaður fyrir bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti undanfarin ár. Má í því sambandi meðal annars nefna þættina Game of Thrones, og kvikmyndir á borð við The Secret Life of Walter Mitty og nú síðast Interstellar. Þessi verkefni hafa skilað miklu fyrir íslenskt þjóðarbú. Fjöldi starfa í kringum stór kvikmyndaverkefni geta skipt hundruðum, seldar eru þúsundir gistinátta á hótelum, tugir bílaleigubíla eru í útleigu auk annarrar þjónustu af ýmsum toga. Þá hefur tekist gott samstarf á milli Íslandsstofu og hina erlendu framleiðendenda um kynningu á Íslandi í aðdraganda frumsýningar þeirra mynda sem hafa verið teknar upp á Íslandi.
Sjá umfjöllun Klapptrés um afraksturinn af endurgreiðslufyrirkomulaginu hér.