Árið 2013 voru seldir 1.369.901 miðar fyrir 1.484.362.247.- krónur í kvikmyndahúsum á Íslandi. Er þetta fækkun á bíógestum um 4% á milli ára en heildartekjur eru einnig niður um 2% miðað við árið 2012.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SMÁÍS, samtökum myndrétthafa á Íslandi.
Þar segir einnig að meðalverð á bíómiða á Íslandi árið 2012 hafi verið 1.084.kr, sem er ennþá það lægsta sem gerist á meðal nágrannaþjóða enda nálægt því meðalverði sem bandaríkjamenn greiddu, sem var $8.05. Þess ber þó að geta að vsk er mun hærri hér á Íslandi en í bandaríkjunum.
Bandarískar kvikmyndir nutu mikilla vinsælda á árinu, eins og oft áður, en að þessu sinni voru allar myndirnar í efstu 20 sætum þaðan. The Hobbit: An Unexpected Journey trónir í efsta sæti á undan þriðju myndinni um Iron Man sem er í öðru sæti rétt á undan öðrum hluta The Hobbit: Desolation of Smaug, sem hefur fengið mjög góða aðsókn á síðustu vikum. Hasarmyndin 2 Guns, sem leikstýrð er af Baltasar Kormáki, er í áttunda sæti en engin íslensk mynd er inná topp 20 listanum í ár.
Hross í oss í 24. sæti – markaðshlutdeild íslenskra mynda dregst verulega saman milli ára
Hross í oss er sú íslenska mynd sem kemst næst því að komast inná topp 20 listann, með tekjur uppá tæpar 20 milljónir sem nægir til að lenda í 24. sæti en næsta íslenska mynd á eftir henni er gamanmyndin Ófeigur gengur aftur í 33 sæti með tekjur uppá tæpar 14.5 milljónir króna. Í heildina nema tekjur af íslenskum kvikmyndum tæpum 3% af heildartekjum 2013 og eru rúmlega 2% af aðsókn. Þetta er verulega lakari hlutfall en árið áður þar sem hlutur íslenskra mynda nam rúmlega 11% af heildartekjum. SMÁÍS segir þetta fara langan veg í að skýra minnkun á heildartekjum milli ára.
13% samdráttur í kvikmyndahúsaðsókn frá 2010 – SMÁÍS kennir niðurhali um
Frá árinu 2010 hefur aðsókn í kvikmyndahús á Íslandi minnkað um 13% en á sama tímabili hefur aðsókn í kvikmyndahús í Bandaríkjunum hækkað um 1%. Þar sem aðbúnaður kvikmyndahúsa á Íslandi er með því allra besta sem gerist í heiminum og meðalverð það lægsta sé borið saman við nágrannalönd segir SMÁÍS greinilegt að ólöglegt niðurhal taki sinn toll og bendir á að hvorki íslensk stjórnvöld né lögregla hafi tekið þátt í að verja hinar skapandi greinar líkt og gert er í öðrum löndum í kringum okkur sem við miðum okkur gjarnan við.
Hérna er listi yfir 20 stærstu myndir ársins 2013 á Íslandi sem eru allar bandarískar að þessu sinni.
[tble caption=“Mest sóttu myndirnar 2013″ width=“580″ colwidth=“20|300|100|60|60″ colalign=“center|left|left|center|center“] Nr.,Titill,Dreifingaraðili,Tekjur kr.,Aðsókn1 ,The Hobbit: An Unexpected Journey,Myndform ,49.444.367,39.785
2 ,Iron Man 3 ,Samfilm ,44.839.945,37.552
3 ,The Hobbit: The Desolation of Smaug,Myndform ,44.313.453,33.559
4 ,Hunger Games 2 ,Myndform ,42.876.296,37.962
5 ,Thor: The Dark World ,Samfilm ,37.251.835,29.862
6 ,Despicable Me 2 (Aulinn ég 2) ,Myndform ,37.030.271,39.709
7 ,Monsters University ,Samfilm ,36.378.205,38.058
8 ,2 Guns ,Sena ,33.016.598,29.845
9 ,Prisoners ,Samfilm ,32.398.460,29.243
10 ,Man Of Steel ,Samfilm ,31.641.285,25.936
11 ,We´re The Millers ,Samfilm ,28.582.378,25.795
12 ,Frozen ,Samfilm ,28.573.396,30.936
13 ,Django Unchained ,Sena ,27.783.643,24.996
14 ,Fast & Furious 6 ,Myndform ,26.654.778,24.631
15 ,World War Z ,Samfilm ,26.029.455,21.156
16 ,Smurfs 2 ,Sena ,25.827.990,27.430
17 ,Hangover 3 ,Samfilm ,24.585.391,22.212
18 ,Croods ,Sena ,24.273.096,26.590
19 ,Gravity ,Samfilm ,22.613.795,18.033
20 ,Life of Pi ,Sena ,22.242.364,17.939
[/tble]