Wift mun standa fyrir vinnusmiðjunni „Development for Distribution“ með Margaret Glover, handritshöfundi, framleiðanda og kennara við London Film School mánudaginn 18. nóvember n.k.
Markmið námskeiðsins er að læra að vera meðvitaður um áhorfendahóp verksins og hugsa um leið um dreifingarferlið stax í framleiðsluferlinu. Einnig er boðið upp á að koma sem áhorfandi til þess að læra og taka þátt í umræðum.
Námskeiðið er opið öllum og verður haldið á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, mánudaginn 18. nóvember næstkomandi og stendur yfir frá kl. 10 til 16 með hádegishlé þar sem hópurinn borðar saman á veitingastað í nágrenninu (hver greiðir fyrir sig) þar sem umræðum verður haldið áfram.
Hluti af námskeiðargjaldinu rennur beint til Wift.
Verð á námskeiðið er sem hér segir:
- 5000 kr. fyrir áhorfanda
- 9.700 kr fyrir verkefni ( allt að 3 meðlimir verkefnisins/myndarinnar geta tekið þátt)
Áhugasamir skrái sig hjá Dögg Mósesdóttur með því að smella hér.
Margaret Glover hefur unnið í Bandaríkjunum, Englandi og á Indandi í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum sem handrithöfundur, handritsráðgjafi og framleiðandi. Hún skrifaði m.a. handritið af Shadows in the Sun og hlaut verðlaun fyrir á Houston Worldfest 2009. Hún skrifaði einnnig handritið af myndinni Kisna fyrir indverska leikstjórann Subhash Ghai.
Sem yfirframleiðandi hefur hún haft umsjón með framleiðslu yfir 150 stuttmynda sem framleiðandi og fyrirlesari hjá London Film School. Auk þess hefur hún haft yfirumsjón með nokkrum fyrstu myndum nemenda í fullri lengd og má þar helst nefna Blackbird, sem var verðlaunamynd Edinburgh International Film Festival á ár auk myndarinnar Falling Leaves,sem verður frumsýnd á Montreal Film Festival.