Á hnignunartímum hugsa allir fyrst og fremst um kynlíf. Þetta er baksvið myndarinnar The Decline of the American Empire eftir Kanadamanninn Denys Arcand.
Skáldsagan Síðasti elskhuginn eftir Val Gunnarsson sækir í sama brunn. Af þessu tilefni verður fyrrnefnd mynd sýnd í Bíó Paradís laugardaginn 9. nóvember kl. 18 og mun Valur stíga á stokk fyrir sýninguna, ræða sögusvið bókar sinnar og hvernig hún kallast á við mynd Arcand. Hver er staða mála á Íslandi í dag eftir að herinn dró sig heim? Hvernig er ástarmálum okkar háttað? Og erum við með einhverja sérstaka íslenska leið til að nálgast ástina?
![Valur Gunnarsson rithöfundur.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/11/Valur-Gunnarsson.jpg?resize=200%2C300&ssl=1)
Uppákoman er jafnframt útgáfuhóf bókarinnar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem útgáfupartí er haldið í bíói hérlendis, enda hefst ástarsaga hans í sama bíói og á sýningu myndar eftir Denys Arcand.
“The Decline of the American Empire var gerð árið 1986, sama ár og Reagan og Gorbachev hittust í Höfða og veldi Bandaríkjanna virtist vera að ná hápunkti sínum” segir Valur. “En fyrir Arcand var hnignunin þegar orðin augljós og rétt eins og Rómverjar í sinni síðustu orgíu lætur hann persónur sínar, fjóra karlmenn og fjórar konur, skeggræða ástarmál sín fram og tilbaka, löngu áður en Sex and the City þættirnir birtust fyrst á skjánum.”
Sjá nánar hér: Samfarir og hnignun heimsvelda- útgáfuhóf og kvikmyndasýning.