Viðskiptablaðið greinir frá því að nokkrir aðilar séu að undirbúa þjónustu á borð við þá sem Netflix veitir. Í umfjöllun blaðsins segir m.a.:
„Verið er að undirbúa áskriftarvodþjónustu hjá nokkrum íslenskum fyrirtækjum í anda bandarísku Netflix-þjónustunnar sem margir Íslendingar notfæra sér. Búast má við því að slík þjónusta líti dagsins ljós á næsta ári, en líklega þarf að breyta virðisaukaskattslögunum áður en af því getur orðið. Eins verður að ganga frá réttindamálum, en rétturinn til að sýna efni í netleigu, eins og hægt er að gera í vod-þjónustum Símans og Vodafone, þýðir ekki að hægt sé að sýna það í áskriftar-voddi.“