![Sigmar Vilhjálmsson, Hlynur Sigurðsson og Hugi Halldórsson í stórveldisstellingum.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/10/Simmi-Hlynur-Hugi-stórveldið.jpg?resize=300%2C225&ssl=1)
Hlynur Sigurðsson hefur verið ráðinn til kvikmynda- og framleiðslufyrirtækisins Stórveldisins þar sem hann mun starfa við framleiðslu. Hlynur er menntaður stjórnmálafræðingur og er með MBA gráðu frá Copenhagen Business School. Hann var meðal annars fréttamaður á RÚV og tók þátt í að stofna og reka mbl sjónvarp.
Stórveldið hefur á undanförnum árum haslað sér völl á sviði sjónvarpsþáttaframleiðslu og má þar nefna þættina Andri á flandri og Andraland, Ameríska og Evrópska drauminn og grillþætti Hrefnu Sætran. Fyrirtækið framleiðir nú Áramótaskaupið fyrir RÚV og Borð fyrir fimm fyrir Skjá einn.
Sjá nánar hér: Viðskiptablaðið – Hlynur til Stórveldisins.