Yfirlýsing frá stjórn FK vegna fjárlagafrumvarps

Félag kvikmyndagerðarmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fjárlagafrumvarps 2014 þar sem niðurskurður á kvikmyndasjóði er harmaður.

[divider scroll_text=“Yfirlýsing stjórnar FK“]

 

fk-logoFélag kvikmyndagerðamanna harmar fréttir um niðurskurð ríkisstjórnarinnar til Kvikmyndasjóðs sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Sú uppbygging og fjárfesting sem hefur átt sér stað í kvikmyndageiranum frá árinu 2012 og varð að veruleika 2013 verður nú að engu og afleiðingar grafalvarlegar fyrir þennan viðkvæma iðnað.

Þessi niðurskurður mun því miður fyrst og fremst kippa fótunum undan innlendri kvikmyndagerð sem stóð mjög völtum fótum eftir þá atlögu sem var gerð þegar sjóðirnir voru skornir niður um 35% 2009. Nú er fjármagnið skorið niður um 42% sem er hrein atlaga að greininni. Áætla má að rúmlega 200 ársstörf tapist í kvikmyndagerð og ljóst er að bæði þekking og faglegt vinnuafl mun hverfa úr landi.

Fjármögnun íslenskra kvikmynda byggir fyrst og fremst á góðu grunnfjármagni frá Kvikmyndasjóði og það hefur hefur verið sýnt fram á það að hver króna margfaldast við það. (sjá Hagræn áhrif kvikmyndagerðar eftir Dr. Ágúst Einarsson, Bifröst 2011:http://rsm.bifrost.is/files/Skra_0057197.pdf

Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður líkti fyrirhugðum niðurskurðaraðgerðum ríksistjórnarinnar við að „slátra mjólkurkúnni“ við tökum heilshugar undir þau orð. Við hvetjum Alþingi til að leiðrétta þennan örlagaríka kúrs og forða íslenskri kvikmyndamenningu frá hruni en við slíkar aðstæður og síendurtekinn niðurskurð getur engin atvinnugrein vaxið og dafnað.

Stjórn Félags kvikmyndagerðarmanna 1. okt. 2013

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR