![The Act of Killing valin besta heimildamyndin á Nordisk Panorama 2013.](https://i0.wp.com/klapptre.is/wp-content/uploads/2013/09/the_act_of_killing_5.jpg?resize=696%2C418&ssl=1)
Nordisk Panorama hátíðinni var að ljúka í Malmö í Svíþjóð. The Act of Killing eftir Joshua Oppenheimer var valin besta heimildamyndin og On Suffocation eftir Jenifer Malmqvist var valin besta stuttmyndin.
Á hátíðinni eru sýndar úrval norrænna heimildamynda og stuttmynda ár hvert. Í ár tóku heimildamyndirnar Aska eftir Herbert Sveinbjörnsson og The Last Thing eftir Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur þátt í hátíðinni.
The Act of Killing er enn í sýningum í Bíó Paradís.
Sjá nánar hér: Nordisk Panorama 2013 – WELCOME to Nordisk Panorama.