HeimFréttirPáll Steingrímsson hlýtur náttúruverndarverðlaun

Páll Steingrímsson hlýtur náttúruverndarverðlaun

-

Páll Steingrímsson tekur við heiðursverðlaunum ÍKSA á Eddunni 2004.
Páll Steingrímsson tekur við heiðursverðlaunum ÍKSA á Eddunni 2004.

Páll Steingrímsson hinn gamalreyndi heimildamyndasmiður, hlaut í dag svokölluð Fjölmiðlaverðlaun Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins fyrir heimildamyndagerð sína þar sem megináhersla hans hefur verið á náttúrulífsmyndir.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.:

„Heimildamyndir Páls Steingrímssonar skipta mörgum tugum frá Vestmannaeyjagosinu 1973 og fram á þennan dag. Megináhersla hans hefur verið á náttúrulífsmyndir, svo sem fuglasögurnar sem hann hefur fengist við hin síðustu ár, og áhrif manna á umhverfið. Starf Páls að fræðslu og vernd íslenskrar náttúru er langt og farsælt og hefur borið hróður hans og landsins um heimsbyggðina.“

Páll hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar bæði hér á landi og erlendis fyrir störf sín, m.a. heiðursverðlaun íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar árið 2004.

Mbl.is greinir frá, sjá nánar hér.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

ÞAÐ NÝJASTA Á KLAPPTRÉ

Fáðu nýjasta efnið á Klapptré í pósthólfið þitt tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

NÝJUSTU FÆRSLUR