Hrönn Marínósdóttir, eigandi og hátíðarstjórnandi RIFF, og Þórir Ólafsson, stjórnarformaður, hafa svarað gagnrýni sem fram kom í fréttaþættinum Þetta helst á RÚV. Þau segja að þær upplýsingar sem komi fram í þættinum gefi „ranga og/eða villandi mynd af starfsemi RIFF.“
Stjórnandi og starfsmaður hjá RIFF í fyrra gagnrýna starfshætti Hrannar Marinósdóttur eiganda RIFF. Síðasta haust kom út skýrsla þar sem margar athugasemdir voru gerðar við stjórnunarhætti hjá hátíðinni.
Úttekt á RIFF, sem KPMG hefur unnið að beiðni Menningarráðuneytisins, er komin út. Ýmsar athugasemdir er þar að finna um starfsemi RIFF. Skýrslurnar birtast hér í heild sem og svör Hrannar Marinósdóttur eiganda RIFF.
Menningarráðuneytið hyggst gera úttekt á rekstri RIFF. Þetta kemur fram í Heimildinni sem hefur að undanförnu skýrt frá harðri gagnrýni á eiganda hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttur.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, fer fram dagana 28. september til 8. október. Olivier Assayas og Werner Herzog verða heiðursgestir hátíðarinnar og sérstakur fókus verður á finnskar myndir. Hrönn Marinósdóttir stjórnandi RIFF, ræðir við Morgunblaðið um hátíðina.
„Það er enginn bilbugur á okkur," hefur RÚV eftir Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF. „Við höldum áfram þessu mikilvæga starfi," segir hún um kvikmyndahátíðina sem haldin verður í ellefta skipti í ár, dagana 25. september til 5. október næstkomandi.
Sú ákvörðun menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar að styrkja Heimili kvikmyndanna ses til að endurvekja Kvikmyndahátíð Reykjavíkur en ekki RIFF eins og undanfarin tíu ár, er umdeild.