Þrjár væntanlegar íslenskar myndir voru sýndar í Verk í vinnslu flokknum á nýafstaðinni Gautaborgarhátíð og voru meðal þeirra sem vöktu hvað mesta athygli og umtal, segir Wendy Mitchell hjá Screen.
Norrænar kómedíur verða í sérstökum fókus á Gautaborgarhátíðinni þetta árið og meðal þeirra níu mynda sem tilheyra flokknum er Vesalings elskendur eftir Maximilian Hult. Myndin er alfarið skipuð íslenskum leikurum og unnin á Íslandi.
Heimildamynd Gríms Hákonarsonar, Litla Moskva, mun taka þátt í keppni norrænna heimildamynda (Nordic Documentary Competition) á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg, dagana 25. janúar - 4. febrúar. Hátíðin er sú stærsta á Norðurlöndunum og fer nú fram í 42. skipti.
Margrét Örnólfsdóttir hefur verið tilnefnd til handritsverðlauna Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins fyrir Flateyjargátuna. Verðlaunin eru veitt á Gautaborgarhátíðinni sem hefst í lok janúar, fyrir besta handritið í flokki sjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndum.