Morgunblaðið um UM TÍMANN OG VATNIÐ: Annað bréf til framtíðarinnar

Jóna Gréta Hilmarsdóttir skrifar í Morgunblaðið um heimildamyndina Um tímann og vatnið eftir Sara Dosa.

Jóna Gréta skrifar meðal annars:

Um tímann og vatnið er óþægileg áminning um óumflýjanlegar áskoranir komandi framtíðar. Um heimildarmynd er að ræða sem er gerð úr kvikmyndasafni fjölskyldu Andra Snæs Magnasonar rithöfundar og sýnir bæði svipmyndir fjölskyldu Andra Snæs og íslensku náttúrunnar. Um tímann og vatnið mætti í raun líka skoða sem sögulega kvikmynd (e. period film) af því að stór hluti hennar gerist í fortíðinni. Sumt myndefnið er áratugagamalt en þar er til dæmis að finna alveg einstaklega fallegt myndefni af íslenskum jöklum sem afi Andra Snæs, Árni Kjartansson, tók upp með 16mm tökuvél sinni. Áhorfendur kynnast einnig Andra Snæ alveg frá því að hann er barn þar til börn hans eru að verða unglingar og komið er að honum að stilla tökuvélinni upp fyrir framan andlit fjölskyldumeðlima sinna, ungra sem aldinna. Áhorfendur fá það á tilfinninguna að lífið líði allt of hratt. Þeir fá ekki einungis að vera fluga á vegg og fylgjast með breytingunum á fjölskyldunni heldur líka náttúrunni og þá helst jöklum Íslands.

Í heildina litið er Um tímann og vatnið gullfalleg mynd sem enginn ætti að missa af. Sara Dosa og Andri Snær minna áhorfendur á alvöru vandans og ábyrgð þeirra gagnvart jörðinni en skilja líka eftir ákveðna von um að ástin og tengsl okkar við hvert annað og náttúruna geti verið leið okkar áfram í átt að bjartari framtíð.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR