Framlög til Kvikmyndasjóðs lækka um tæp 5% í fjárlagafrumvarpi 2027

Í nýkynntu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 eru áætluð framlög til Kvikmyndasjóðs 1.296,5 milljónir króna. Framlög 2026 námu 1.362,3 milljónum króna. Lækkunin nemur tæpum 5%, en tæpum 10% miðað við verðbólgu.

Í rekstur Kvikmyndamiðstöðvar er gert ráð fyrir 176,5 milljónum króna á næsta ári. Það er hækkun um rúm 12%, en á þessu ári voru þau 157,5 milljónir.

Þá er gert ráð fyrir 4.763 milljörðum króna í endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á næsta ári, en á þessu ári er gert ráð fyrir um 4 milljörðum.

Kvikmyndasafn Íslands fær 174,5 milljónir króna á næsta ári, miðað við 168,3 milljónir króna á þessu ári.

Skoða má tölurnar með því að smella hér. Tölurnar fyrir Kvikmyndamiðstöð og Kvikmyndasafn eru á bls. 26 og 27. Tölur varðandi endurgreiðslur eru á bls. 15.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR