Jóna Gréta skrifar meðal annars:
Sagan fylgir rannsóknarlögreglukonunni Hildi Rúnarsdóttur (Ebba Katrín Finnsdóttir), sem á að baki langa sorgarsögu, en báðar systur hennar hurfu sporlaust fyrir rúmum 20 árum og ári síðar missti hún báða foreldra sína í bílslysi. Hildi er nú falið að rannsaka morðið á barnaníðingnum Jóni Jónssyni (Þór Tulinius) en henni til aðstoðar eru tveir metnaðarfullir menn í þjálfun á lögreglustöðinni á Ísafirði; Finninn Jakob (Lauri Tilkanen) og Þjóðverjinn Florian (Rick Okon).
Viðfangsefnið er ekki mjög frumlegt, þ.e. morð á afskekktum og kuldalegum bæ, sem náið og lítið teymi lögreglumanna leysir. Út frá lýsingunni myndu líklega margir flokka Hildi sem svokallaðan norrænan rökkurkrimma (e. nordic noir) en „rökkur“ á hér ekki við og því lýsa þau Hildi sem norrænni blárri glæpasögu, eða á ensku „Nordic blue“, á vefnum IMDb. Hjá lögreglunni á Ísafirði er ekki allt grátt og þunglamalegt heldur prýðir litrík íslensk náttúra gjarnan myndheildina (f. mise-en-scène) þó að aðalpersónur þáttanna séu heldur þungar á brún.
Sögupersónurnar í Hildi hafa þó allavega fundið sér farveg fyrir tilfinningar sínar, Hildur stundar brimbretti á morgnana en Jakob prjónar. Í þáttunum er líka ekki síður lögð áhersla á tilfinningalegar flækjur persónanna og hver ástæðan sé fyrir þeim, enda er það ekki síður áhugavert en að finna út úr því hver morðinginn er.













