Um aðferðafræðina
Tölurnar eru byggðar á áhorfsmælingum Gallup sem framkvæmdar eru daglega árið um kring. Birtar eru áhorfstölur í prósentum og fjölda áhorfenda. Á bakvið hvert prósent eru 2.650 manns á aldrinum 12-80 ára. Tölurnar innihalda allt áhorf, þar með talið svokallað hliðrað áhorf (spilari RÚV ofl.) frá frumsýningu í línulegri dagskrá og næstu sjö daga eftir það. Á undanförnum árum hefur áhorf færst mjög yfir á hliðrað áhorf og því ljóst að tölurnar hér að neðan segja aðeins hluta sögunnar.
Þegar verk birtist í tveimur þáttum eða fleiri er birt meðaláhorf. Það er reiknað þannig að áhorfstölur hvers þáttar fyrir sig eru lagðar saman og deilt í með fjölda þátta. Hugtakið meðaláhorf nær yfir þann fjölda sem horfði allan tímann.
Hafa ber í huga að útleggingar mælinga eru mismunandi eftir eðli verka. Bíómyndir eru (oftast) sýndar í heilu lagi og því er um heildaráhorf að ræða. Heimildamyndir eru stundum stakar en stundum í þáttaröðum. Gerð er grein fyrir þessu með hvert verk og því ýmist um heildaráhorf eða meðaláhorf á þátt að ræða eftir atvikum. Leikið sjónvarpsefni er yfirleitt sýnt í nokkrum þáttum og því er þar sagt frá meðaláhorfi á þátt.
Athugasemd varðandi verk sýnd í Sjónvarpi Símans Premium: Áhorfsmælingar Gallup ná ekki til þessa efnis. Hinsvegar hefur Klapptré aflað upplýsinga frá Símanum um fjölda pantana á þessum verkum 2025. Gerð er grein fyrir heildarfjölda pantana hvers verks og síðan deilt í með fjölda þátta til að fá meðalfjölda pantana. Ekki er vitað hveru margir áhorfendur eru á bakvið hverja pöntun.
Verði lesendur varir við villur eða að upplýsingar vanti, er hægt að koma ábendingum á framfæri hér.
Áhorf á leikið sjónvarpsefni 2025
| HEITI | STÖÐ | FJÖLDI ÞÁTTA | ÁHORF% | ÁHORFENDUR |
| Vigdís | RÚV | 4 | 31,5 | 83.475 |
| Felix og Klara | RÚV | 10 | 31 | 82.150 |
| Brjánn | Sýn | 6 | Ekki vitað | Ekki vitað |
Pantanir á leiknu sjónvarpsefni í Sjónvarpi Símans Premium 2025
| HEITI | STÖÐ | FJÖLDI ÞÁTTA | MEÐALFJÖLDI PANTANA PR. ÞÁTT | PANTANIR ALLS |
| Reykjavík 112 S01 | Sjónvarp Símans Premium | 6 | 83.258 | 499.548 |
| IceGuys S03 | Sjónvarp Símans Premium | 4 | 64.005 | 256.018 |
| Reykjavík Fusion S01 | Sjónvarp Símans Premium | 6 | 50.313 | 301.875 |
| Heimaey S01* | Sjónvarp Símans Premium | 6 | 38.172 | 229.030 |
| Vesen S01 | Sjónvarp Símans Premium | 6 | 16.478 | 98.870 |
| *Sex þættir af Heimaey frumsýndir 2025, hinir tveir sýndir 2026. | ||||
Áhorf á íslenskar bíómyndir 2025
| HEITI | STÖÐ | FJÖLDI ÞÁTTA | ÁHORF% | ÁHORFENDUR |
| Ljósvíkingar | RÚV | 1 | 22 | 58.300 |
| Snerting | RÚV | 1 | 8,1 | 21.465 |
Áhorf á íslenskar heimildamyndir 2025
| HEITI | STÖÐ | FJÖLDI ÞÁTTA | ÁHORF% | ÁHORFENDUR |
| Matarsaga Íslands | RÚV | 7 | 20,5 | 54.325 |
| Riða | RÚV | 1 | 14,8 | 39.220 |
| Aldrei í 20 ár | RÚV | 1 | 14,3 | 37.895 |
| Ellen-engin önnur en ég er | RÚV | 1 | 13,5 | 35.775 |
| Sjálfsvörn | RÚV | 1 | 9,7 | 25.705 |













