spot_img

Gísli Snær Erlingsson skipaður formaður stjórnar Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins

Norræna ráðherranefndin hefur skipað stjórn Nordisk Film & TV Fond (NFTVF) fyrir tímabilið 2026–2028 og jafnframt skipað Gísla Snæ Erlingsson, forstöðumann Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, sem formann stjórnar.

Stjórn Nordisk Film & TV Fond er endurnýjuð á þriggja ára fresti. Í stjórninni sitja ávallt fimm fulltrúar, einn frá hverju Norðurlandanna fimm.

Á árunum 2026–2028 gegnir Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, hlutverki formanns stjórnar og Elina Pohjola, framleiðandi og kvikmyndaráðgjafi hjá finnska ríkisútvarpinu, Yle, sem varaformaður.

Stjórn Nordisk Film & TV Fond fyrir 2026–2028 er svo skipuð:

Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður, Kvikmyndamiðstöð Íslands (formaður)
Elina Pohjola, framleiðandi / kvikmyndaráðgjafi, Yle (varaformaður)
Morten Fisker, yfirmaður utanaðkomandi framleiðslu og rétthafamála, TV 2 Danmörku
Johanna Gårdare, yfirmaður leikins efnis, SVT
Kjersti Mo, forstöðumaður, Norska kvikmyndastofnunin

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR