Rafmennt vill taka við nemendum Kvikmyndaskólans

Rafmennt, iðnmenntunarstofnun í eigu Rafiðnaðarsambands Íslands og fleirri aðila, vill taka við nemendum Kvikmyndaskólans og hvetur menntamálaráðuneytið til að taka upp viðræður þar að lútandi.

Rafmennt hefur um árabil rekið nám í kvikmyndatækni. Meðal kennara er þekkt fagfólk í íslenskum kvikmyndaiðnaði.

Í yfirlýsingu frá Jakobi Tryggvasyni, formanni RSÍ og Þór Pálssyni, framkvæmdastjóra og skólameistara Rafmenntar, segir:

Í mars var tilkynnt að rekstrarfélag Kvikmyndaskólans Íslands væri á leið í gjaldþrot. Rafmennt, sem sinnir fræðslu fyrir raf- og tækniiðnaðinn á Íslandi, hefur brugðist við þessari alvarlegu stöðu með því að lýsa yfir vilja til að ganga til viðræðna við mennta- og barnamálaráðuneytið um að taka við þeirri kennslu sem Kvikmyndaskólinn hefur haft á sinni könnu. Rafmennt býr hvoru tveggja yfir aðstöðu og fjármunum til að taka við þessu mikilvæga hlutverki.

Nemendur í kvikmyndaiðnaði eru framtíðarfélagsfólk í Félagi tæknifólks, aðildarfélagi Rafiðnaðarsambands Íslands – annars tveggja eigenda Rafmenntar. Því liggur beint við að Rafmennt taki við þessari fræðslu.

Þrátt fyrir yfirlýstan vilja og stuðning annars staðar úr stjórnsýslunni hefur ráðuneytið ekki viljað grípa tækifærið og ræða við stjórn Rafmenntar. Það vekur bæði undrun og áhyggjur. Stjórnin skorar á ráðuneytið að bregðast við án tafar og hefja samtal.

Leysa þarf tafarlaust úr þeirri stöðu sem upp er komin og tryggja að framtíð kvikmyndagerðar á Íslandi verði ekki teflt í tvísýnu.

HEIMILDrafis.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR