LJÓSVÍKINGAR yfir tíu þúsund gesti eftir fjórðu helgi

Áfram er góður gangur á Ljósvíkingum. Myndin er aftur í fyrsta sæti á aðsóknarlista FRÍSK eftir fjórðu helgi.

2,897 gestir sáu Ljósvíkinga í vikunni, en alls hafa 10,046 séð hana eftir fjórðu helgi.

Ljósbrot sáu 266 í vikunni. Alls nemur heildarfjöldi gesta 5,954 manns eftir fimmtu helgi.

Snertingu sáu 257 í vikunni. Alls hefur myndin fengið 44,364 gesti eftir 18. sýningarhelgi.

Aðsókn á íslenskar myndir 23.-29. sept. 2024

VIKUR MYND AÐSÓKN (SÍÐAST) ALLS (SÍÐAST)
4 Ljósvíkingar 2,897 (2,545) 10,046 (7,149)
5 Ljósbrot 266 (473) 5,954 (5,688)
18 Snerting 257 (414) 44,364 (44,107)

(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR