spot_img

Margar íslenskar kvikmyndir sýndar á RIFF

Fjölmargar íslenskar kvikmyndir verða sýndar á RIFF í ár. Klapptré hefur þegar skýrt frá stuttmyndadagskránni, en hér eru kvikmyndir í fullri lengd sem verða á dagskrá.

Þarna eru leiknar myndir, heimildamyndir og verk með tilraunkenndum blæ. Nokkrar hafa óbeina íslenska tengingu en flestar eru gerðar hér á landi.

Elskling / Elskuleg
Lilja Ingólfsdóttir, íslensk-norsk.

Opunarmynd hátíðarinnar, sem sló í gegn á Karlovy Vary hátíðinni í sumar og hlaut þar fimm verðlaun. Klapptré fjallaði um Lilju Ingólfsdóttur leikstjóra og handritshöfund hér. María reynir að sinna fjórum börnum sínum af álíka metnaði og starfsframanum en sinnast einn daginn við eiginmanninn sem fer fyrir vikið fram á skilnað.

DuEls / Einvígin
Jonas Äkerlund, íslensk-norsk-sænsk.

Dansverk samið af Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet og flutt er innan um kynngimagnaðar höggmyndir á Vígelundssafninu í Osló í seiðandi listfengi.

Natatorium / Sundhöll
Helena Stefánsdóttir, íslensk.

Þegar fjölskylda Lilju, sem hefur ekki hist í langan tíma, kemur saman til að fagna inntöku hennar í listhóp, koma ljót fjölskylduleyndarmál upp á yfirborðið.

Aftergames / Eftirleikir
Ólafur Árheim, íslensk.

Maður í leit að dauðanum og kona á flótta reyna að gera upp ofbeldisfulla fortíð sína með frekari hrottaskap, þvert á plön alheimsins – í harla ískyggilegum trylli. Myndin er væntanleg í kvikmyndahús 1. nóvember. Umfjöllun Klapptrés má skoða hér.

All Eyes on Me / Allra augu á mér
Pascal Payant, íslensk-kanadísk.

Gunnar, sem kýs fremur vinskap hrossa en fólks, kynnist pólskri konu á flótta frá fortíðinni, þegar hann fer á slysstaðinn þar sem kona hans og sonur hröpuðu.

Birdlife / Fuglalíf
Heimir Freyr Hlöðversson, íslensk.

Heimildarmynd um Jóhann Óla Hilmarsson, baráttumann náttúruverndar, sem er fyrsti og eini Íslendingurinn sem gerði fuglaljósmyndun að atvinnu sinni.

Boganloch / Einbúinn
Ben Rivers, íslensk, skosk, þýsk.

Uppi í víðernum Skotlands, fylgjum við Jake eftir frá einni árstíð til annarrar á meðan aðrar persónur skjóta af og til upp kollinum í einmanalegri vist hans.

Iceland, on the Trail of Democracy / Ísland á vegi lýðræðisins
Steve Vilhelm, frönsk.

Ný frönsk heimildarmynd um íslensku búsáhaldabyltinguna sem spratt upp í efnagshruninu í októbermánuði árið 2008, upphaf hennar, framvindu og áhrif.

Hotel Silence / Ör
Léa Pool, kanadísk, byggð á skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ör.

Jean gerir sér ferð til stríðshrjáðs lands og veit hvorki hvort hann skili sér til baka né hver örlög hans verða, enda er hann svo að segja ráðvilltur í öllu sínu skinni. Sjá umfjöllun Klapptrés um verkið hér.

Temporary Shelter / Tímabundið skjól
Anastasiia Bortuali, íslensk, sænsk, framleidd af Helga Felixsyni.

Heimildarmynd um flóttafólk frá Úkraínu og öðrum löndum sem hefur aðsetur á Ásbrú, og bíður örlaga sinna og spyr hvort það sé komið til að vera á þeim stað. Sjá umfjöllun Klapptrés hér.

When the Raven Flies / Hrafninn flýgur
Hrafn Gunnlaugsson, íslensk, sænsk.

Gestur snýr aftur til Íslands til að hefna foreldra sinna sem hann sá myrta þegar hann var lítill drengur á Írlandi. 40 ára dáður og sígildur íslenskur spagettí-vestri.

Flowers / Blóm
Grétar Jónsson, íslensk.

Afslöppuð og býsna hugljúf gamanmynd um þá áskorun mannsins að þora að halda með hjartanu og sjálfstraustið sem þarf til að fylgja draumum sínum eftir.

Hamraborgin – Óður til hávaða / Hamraborgin – Ode to Noise
Úlfur Eldján, Patrik Ontkovic, íslensk.

Byggð á tónverki Úlfs sem flutt var í Salnum í Kópavogi, en við það blandast myndefni Patrik Ontkovic sem fangar á filmu hráa fegurð Hamraborgarinnar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR