spot_img

Þessar íslensku stuttmyndir verða sýndar á RIFF

Stuttmyndadagskráin á RIFF í ár hefur verið kynnt. Alls verða sýndar 18 myndir og skiptast þær í leiknar stuttmyndir, stuttar heimildamyndir og tilraunamyndir.

Að sögn RIFF sóttu nær hundrað verk um í ár. Hátíðin fer fram dagana 26. september til 6. október. Dagsetning á stuttmyndadagskrá virðist ekki liggja fyrir.

Umfjöllun Klapptrés um stuttmyndirnar á RIFF í fyrra má skoða hér að neðan.

Íslenska grasrótin á RIFF 2023

Leiknar stuttmyndir

Leiknu myndirnar í ár eru átta talsins og eru jafn ólíkar að efni og þær eru margar, en allar eru til vitnis um kraftinn í stuttmyndagerð á Íslandi – og afar ríka sköpunargleði, segir í tilkynnningu frá RIFF.

Annalísa Hermannsdóttir sýnir Duld sem fjallar um Vigdísi, yfirmann á lögmannsstofu, og einn morgun í lífi hennar sem gerist í dystópískum hliðarveruleika.

Gunnjón Gestsson er með verkið Gústi sterki og hefnd hafsins sem segir af tveimur sjómönnum sem lenda í klóm ógnvænlegs hafbúa.

Hjördís Jóhannssdóttir mætir með Brúðurina, en sú er eistnesk og fær óvænt pata af óþægilegu máli daginn sem hún er að fara giftast íslenskum karli sínum.

Í stuttmynd Kötlu Sólnes sem ber heitið Veður ræður akri, en vit syni, þarf Hera að gera það upp við sig hvort niðurnítt hús hennar við sjóinn standist lengur ágjöfina.

Kolbeinn Gauti Friðriksson sýnir myndina Smakk sem gerist í bragðprufufyrirtæki og hverfist um yfirmann sem hvetur starfsmann sinn til dáða.

Nikulás Tumi leikstýrir Bláa stráknum sem greinir frá ungum húsamálara sem endar heima hjá heillandi pari sem hann hitti fyrir tilviljun fyrir utan næturklúbb.

Oddur S. Hilmarsson sýnir Hús til sölu þar sem fasteignasali nokkur lendir í þeim hremmingum að geta varla selt sitt eigið hús, hvað þá annað.

Sölmundur Ísak söguna af Mikaelu sem hefur einsett sér að missa meydóminn í námi sínu í útlöndum, en myndin heitir Klárum ‘etta.

Tilraunamyndir

Í flokki tilraunamynda eru fimm myndir sýndar:

Í Gumma kaffi eftir þá Adam Emil Ríkharðsson og Nóa Þrastar lenda tveir félagar á bensínstöð í röð atvika sem fær þá til að leiða hugann að heldur bíræfnum þjófnaði.

Í mynd Emmanuel Vaughan-Lee og Adam Loften, Síðasta ísöldin, skoðar skáldið Andri Snær Magnason bráðnandi jökla og skiptir talnagögnum út fyrir persónulega nálgun,

Blóm inn við beinið er saga Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur af konu sem kastar hljóðfæri sínu í hyldýpið, en að því búnu taka ástúðin ein og sköpunarþráin að vísa henni veginn.

Heimsfrumsýning verður á Sterkari eftir Nataliu Mayling Pachero sem fjallar um endurfundi og tengsl – og Hildu sem gerir allt til að standa sig eftir að faðir hennar veikist.

Aephie Chen og Ingvar Haukur Guðmundsson sýna Mamu en þar fara átthagarnir á meðal frumbyggja í Taívan að leita á Mayaw þar sem hann býr á efri árum í grámyglu Lundúna.

Stuttar heimildamyndir

Í flokki heimildamynda verða þessar fimm sýndar:

Ægis Zita er höfundur myndarinnar Dæner fyrir lömb og guði sem fjallar vitaskuld um lömb og guði sem nærast á fórnum, virðingarleysi, hlýðni, guðrækni, gleði, undrun og hvert öðru!

Hamskipti er mynd eftir Pétur Jónsson og gerist í ófyrirséðri framtíðinni þegar jöklarnir eru horfnir af yfirborði jarðar, allir sem einn, og þess er freistað af þálifendum að endurlífga þá.

Tumi Gonzo Björnsson segir söguna af sóðanum Geir í mynd sinni, Menning og listir, en sá hefur störf á listasafni þar sem hann hittir hinn upptrekkta Hörð sem dreymir um að verða listamaður.

Kóngur er nafnið á nýjasta tónlistarmyndbandi íslenska kúnstnersins Brikcs, í leikstjórn Vasco Alexander, en það er tekið upp á listasafni og kafar ofan í margbreytileika mannsins.

Í mynd Simone Hart og Jóns G. Geirfinnssonar, Slit, er ljósi varpað á Ingu Birgittu Spur sem hefur helgað líf sitt forvörslu listaverka eiginmanns hennar heitins, Sigurjóns Ólafssonar.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR