Viðurkenningin var afhent í gær á Sjóminjasafninu. Hún er veitt þeim einstaklingum, hópum, félagasamtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um gott aðgengi með fjölbreyttum hætti.
Segir um þetta á vef borgarinnar:
Viðurkenninguna hlýtur Bíó Paradís fyrir að hafa stórbætt aðgengi fatlaðs fólks með fjölbreyttar aðgengisþarfir að kvikmyndahúsinu. Húsnæði Bíó Paradís við Hverfisgötu var gert aðgengilegt og haldnar hafa verið sýningar sem henta sérstaklega einhverfu, heyrnarskertu og sjónskertu fólki. Í kvikmyndahúsinu eru einnig haldin Miðvikudagsbíó í samstarfi við Laugarás meðferðargeðdeild, Teymi Reykjavíkurborgar um alþjóðlega vernd og neyðarskýlin. Bíó Paradís fór af stað með þessar breytingar á bættu aðgengi að sýningum og húsnæðinu að eigin frumkvæði og eru til fyrirmyndar þegar kemur að inngildingu þjónustu.
Hús fyrir öll
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís, segir þetta mikilvæga viðurkenningu fyrir kvikmyndahúsið.