Þessar myndir keppa á Sprettfisk

20 myndir hafa verið valdar til þátttöku í Sprettfisk stuttmyndakeppninni á Stockfish hátíðinni.

Markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja það til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni. Verðlaunin koma frá RÚV og KUKL tækjaleigu. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og verða aðgengilegar í spilara RÚV.

Hátíðin fer fram dagana 4.-14. apríl.

75 myndir voru sendar inn í keppnina, og þær tuttugu sem urðu fyrir valinu munu keppa í fjórum flokkum:

BESTA LEIKNA STUTTMYNDIN
Intrusion (Fár) – Gunnur Martinsdóttir Schlüter
Route 7 – Óskar Þorri Hörpuson
High Tide – Arina Vala Thordardottir
Alone – Þura Stína Kristleifsdóttir
Showers – Logi Sigursveinsson

BESTA STUTTA HEIMILDAMYNDIN
Hafey – Hanna Hulda Hafthorsdottir
Empath fridges – Rakel Jónsdóttir
New Life – Andri Freyr Gilbertsson
Mountain Saga – Edda Sól Jakobsdóttir
Misplaced – Michelle Pröstler

BESTA STUTTA TILRAUNAMYNDIN
If I Die, Will I Go Home? – Peter Thor
Soulmates – Alda Ægisdóttir
That’s Just How It Is – Björk Magnúsdóttir, Askur Benedikt Árnason Nielsen
Vagus Symphony – Hanna Björk Valsdóttir
Fragments of the Attempt – Steiní Kristinsson

BESTA TÓNLISTARMYNDBANDIÐ
Yfir skýin – Lúpína, Hanna Hulda Hafþórsdóttir
Solarr – Talos, Máni M. Sigfusson
Problems – Flesh Machine, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir
Spiritus Naturae Aeternus – Dustin O’Halloran, Markus Englmair
Holdgervingur Lauslætis + Imagine A Woman – Kristína Rannveig Jóhannsdóttir, Freyja Vignisdóttir

HEIMILDStockfish
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR