Þar segir ennfremur meðal annars að Magnús hafi setið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2014 auk þess að hafa áður starfað hjá fyrrum dótturfélagi Símans Skjánum á árunum 2004-2007. Magnús mun starfa hjá félaginu til mánaðamóta og í framhaldinu verða félaginu innan handar í verkefnum sem snúa að sjónvarpsþjónustu eins og þörf krefur.
“Magnús hefur verið í forystuhlutverki Símans á sviði íslenskrar miðlunar á undanförnum árum og leitt algera umbyltingu í rekstri sjónvarps okkar. Auk lykilhlutverks hans við umbreytingu og eftirtektarverðum vexti miðla Símans á undanförnum árum hefur Magnús einnig leitt vöruþróun og nýsköpun félagsins á fjölmörgum öðrum sviðum,“ segir Orri Hauksson forstjóri Símans í sömu tilkynningu.
Magnús segir síðasta áratig hafa verið ótrúlega krefjandi og skemmtilegan. „Það er óvíða sem samkeppni er eins virk og í fjölmiðlum og fjarskiptum og ég skil afar sáttur við frábæra stöðu mála hjá Símanum. Miðlun hefur vaxið frá því að vera lítil hliðarbúgrein yfir í að verða í árslok stærsta tekjustoð Símans. Ég kveð Símann því með söknuði og þakklæti en einnig tilhlökkun yfir því sem fram undan er.“
Í viðtali við Vísi segir Magnús að hann muni fylgjast spenntur með því sem gerist á fjölmiðlamarkaði á næstu misserum. „Ég tel þetta verði eins og flest ár, að það verði einhverjar miklar sviptingar þar.“