Kuldi eftir Erling Óttar Thoroddsen var frumsýnd um helgina og hlaut góða aðsókn.
Kulda sáu 5,086 gestir frumsýningarhelgina, en alls 5,936 með forsýningu. Myndin er í efsta sæti tekjulista FRÍSK. Aðsóknin er á pari við Napóleonsskjölin sem sýnd var fyrr á árinu og fékk alls um 30 þúsund gesti.
Aðsókn á íslenskar myndir 28. ágúst – 3. september 2023
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
Ný | Kuldi | 5,086 (helgin) | 5,936 (með forsýningu) |
(Heimild: FRISK – Theatrical Box Office Reports Iceland)