Eva María Daníels látin

Eva María Daniels kvikmyndaframleiðandi er látin, tæplega 44 ára að aldri, eftir langvarandi veikindi. Hún lætur eftir sig eiginmann og ungan son.

Eva María fæddist 5. júlí 1979 og ólst upp í Vogahverfinu í Reykjavík. Hún nam viðskiptafræði og síðan heimspeki við Háskóla Íslands en 2002 fór hún til Kaupmannahafnar þar sem hún lagði stund á nám í kvikmyndagerð. Þaðan lá leiðin til hins kunna eftirvinnslufyrirtækis The Mill í London. Þaðan réðist hún til eftirvinnslufyrirtækisins Company 3 í Bandaríkjunum, en 2010 stofnaði hún sitt eigið framleiðslufyrirtæki, Eva Daniels Productions.

Meðal kvikmynda sem Eva María hefur komið að sem framleiðandi eru Time Out of Mind (2014) eftir Oren Moverman með Richard Gere í aðalhlutverki, What Maisie Knew (2012) sem leikstýrt var af David Siegel og Scott McGehee og skartar Julianne Moore, Alexander Skarsgard og Steve Coogan í helstu hlutverkum, The Dinner (2017) eftir Oren Moverman með Richard Gere, Laura Linney, Steve Coogan, Rebecca Hall og Chloe Sevigny í helstu hlutverkum, Hold the Dark (2018) eftir Jeremy Saulnier með Jeffrey Wright og Alexander Skarsgård og Joe Bell (2020) eftir Reinaldo Marcus Green með Mark Wahlberg í aðalhlutverki.

Eva María var ráðin kvikmyndaráðgjafi hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands í febrúar 2022.

Viðtal Klapptrés við hana frá 2016 má finna hér að neðan og hér er umfjöllun Morgunblaðsins um hana frá 2021.

Viðtal við Evu Maríu Daniels kvikmyndaframleiðanda í Bandaríkjunum

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR