Önnur syrpa þáttaraðarinnar Ráðherrann er í undirbúningi. RÚV og norrænu almannastöðvarnar munu sýna þættina.
Cineflix Rights í London mun selja þættina sem verða átta, á heimsvísu. Viaplay hefur tryggt sér sýningarrétt í Bretlandi og Þýskalandi.
Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið, forsætisráðherra sem glímir við geðrænan vanda. Anita Briem fer með hlutverk Steinunnar, konunnar á bakvið manninn.
Arnór Pálmi Arnarson mun leikstýra þáttunum ásamt Katrínu Björgvinsdóttur. Birkir Blær Ingólfsson og Jónas Margeir Ingólfsson skrifa handrit. Framleiðandi er Hlín Jóhannesdóttir fyrir Sagafilm, en yfirframleiðendur eru Kjartan Þór Þórðarson, Hilmar Sigurðsson, Ragnar Agnarsson og Ólafur Darri Ólafsson.