Fjárfestar koma að Tulipop

Fjárfestingarsjóðurinn Eyrir Vöxtur hefur fjárfest í íslenska frumkvöðlafyrirtækinu Tulipop, en sjóðurinn keypti hlut í félaginu fyrir 250 milljónir króna í nýlegri hlutafjáraukningu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tulipop:

Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar, segir:

„Við höfum fylgst með Tulipop byggja upp einstakt íslenskt hugverk fyrir börn á heimsmælikvarða, þar sem áhersla er lögð á gæði og jákvæð skilaboð. Markaðstækifærið fyrir slík hugverk er gríðarlega stórt og hlökkum við til að taka þátt í þeirri vegferð sem er framundan við að koma Tulipop á markað alþjóðlega.“

Tulipop, sem var stofnað árið 2010, haslaði sér í upphafi völl með framleiðslu varnings þar sem Tulipop persónurnar eru í lykilhlutverki, en hefur síðastliðin ár lagt megináherslu á að þróa og framleiða afþreyingarefni sem byggir á Tulipop heiminum.

Stærsta verkefni félagsins hefur verið framleiðsla teiknimyndaþáttaraðarinnar Ævintýri Tulipop, en stefnt er að framleiðslu á fjórum þrettán þátta þáttaröðum og vinna í dag um 100 manns að framleiðslu þáttaraðarinnar, bæði á Íslandi og erlendis. Ævintýri Tulipop er fyrsta íslenska teiknimyndaþáttaröðin sem fer í alþjóðlega dreifingu.

Á Íslandi var fyrsta þáttararöðin af Ævintýri Tulipop (13 þættir x 7 mínútur) frumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium á síðasta ári en einnig er þáttaröðin komin í sýningar hjá NRK í Noregi, YLE í Finnlandi og munu sýningar hefjast í fjölda annarra landa á komandi vikum. Ævintýri Tulipop fengu nýverið tilnefningu til Edduverðlaunanna, í flokknum besta barnaefni síðasta árs.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop, segir:

„Það er virkilega ánægjulegt að fá Eyri Vöxt inn í hóp sterkra hluthafa, en félagið stendur á mjög spennandi tímamótum nú þegar teiknimyndaþáttaröðin Ævintýri Tulipop er í þann mun að fara í sýningar víða um heim. Því fylgja stór tækifæri og möguleikar á að byggja upp vörumerkið enn frekar og ná samningum við sterka samstarfsaðila um framleiðslu leikfanga, bókaútgáfu og margt fleira, auk þess sem stefnt er að framleiðslu fleiri teiknimynda sem byggja á þessu vinsæla íslenska hugverki.“

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR