Volaða land Hlyns Pálmasonar og Berdreymi Guðmundar Arnars Guðmundssonar halda áfram að sópa til sín verðlaunum.
Volaða land var á dögunum valin besta myndin á Riga International Film Festival í Lettlandi. Ingvar E. Sigurðsson var einnig valin besti leikarinn fyrir leik sinn í myndinni á Festival de Cine í Gáldar á Spáni.
Þá hlaut Berdreymi aðalverðlaun La Roche-sur-Yon hátíðarinnar í Frakklandi.