Abbababb! er komin yfir tíu þúsund gesti í heildina eftir fimmtu helgi.
Myndin er áfram í þriðja sæti aðsóknarlistans. 837 sáu myndina í vikunni, en myndin hefur nú alls fengið 10,371 gest eftir fimmtu helgi.
Svartur á leik (2012), er í sýningum vegna 10 ára afmælis. Myndin fékk 1,039 gesti í vikunni og nemur heildaraðsókn því 65,249 gestum. Hún er í 7. sæti aðsóknarlistans.
Sumarljós og svo kemur nóttin fór í almenningar sýningar um helgina. 383 sáu myndina um helgina en alls nemur aðsókn 883 gestum með forsýningu. Myndin er í áttunda sæti.
Svar við bréfi Helgu er í 13. sæti eftir sjöundu helgi. 496 sáu myndina í vikunni, en heildarfjöldi nemur nú 8,878 gestum.
Heimildamyndina Sundlaugasögur sáu 84 í vikunni. Heildaraðsókn nemur 318 gestum eftir aðra helgi. Myndin er í 20. sæti.
Heimildamyndina Velkominn Árni sáu 50 í vikunni, en alls hefur hún fengið 787 gesti eftir fjórðu helgi. Myndin er í 21. sæti.
Aðsókn á íslenskar myndir 10.-16. okt. 2022
VIKUR | MYND | AÐSÓKN (SÍÐAST) | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
2 | Svartur á leik (endursýnd) | 1,039 (1,177) | 65,249 (64,210) |
5 | Abbababb! | 837 (1,228) | 10,371 (9,534) |
7 | Svar við bréfi Helgu | 496 (810) | 8,878 (7,860) |
Ný | Sumarljós og svo kemur nóttin | 383 (helgin) | 883 (með forsýningum) |
2 | Sundlaugasögur | 84 (234) | 318 (234) |
4 | Velkominn Árni | 50 (201) | 787 (661) |