BEAST Baltasars Kormáks í öðru sæti í Bandaríkjunum eftir opnunarhelgina

Kvikmyndin Beast í leikstjórn Baltasars Kormáks var frumsýnd í Bandaríkjunum á föstudag og er í öðru sæti eftir frumsýningarhelgina.

Idris Elba fer með aðalhlutverkið í myndinni sem fjallar um föður sem fer með tvær dætur sínar í ferðalag um S-Afríku, þar sem þau þurfa að kljást við illvígt ljón.

Myndin var frumsýnd í 3,743 sölum og tók inn 11,57 milljón dollara á opnunarhelginni. Beast verður frumsýnd hér á landi um næstu helgi.

Hér má sjá viðbrögð gagnrýnenda við myndinni, en hún er sem stendur með 68% skor á Rotten Tomatoes.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR