[Stikla, plakat] ÞROT frumsýnd 20. júlí

Glæný stikla úr kvikmyndinni Þrot í leikstjórn Heimis Bjarnasonar var afhjúpuð í dag ásamt plakati og frumsýningardegi. Kvikmyndir.is greinir frá.

Segir þar:

Um er að ræða sakamáladrama sem segir frá dularfullu morðmáli sem skekur smábæjarsamfélag og þeim áhrifum sem það hefur á líf og fortíð þriggja ólíkra einstaklinga. Gömul sár verða að nýjum og fljótt verður ljóst að sögum ber ekki saman og reynir á fjölskylduböndin sem aldrei fyrr eftir því sem sannleikurinn skýrist.

Myndin hreppti titilinn Besta erlenda myndin á San Diego Movie Awards og hefur verið valin til þátttöku á BARCIFF (Barcelona Indie Filmmakers Festival), Crown Wood International Film Festival ásamt New Wave Film Festival í Þýskalandi.

Þetta er fyrsta kvikmynd Heimis í fullri lengd en hann skrifaði einnig handritið. Heimir útskrifaðist úr Prague Film School í Tékklandi árið 2016. Skólafélagi hans þaðan, Nicole Goode, er kvikmyndatökumaður myndarinnar.

Myndin var að mestu leyti tekin á Hvolsvelli og nærliggjandi sveitum. Með helstu hlutverk fara Bára Lind Þórarinsdóttir, Anna Hafþórsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Pálmi Gestsson og Guðrún S. Gísladóttir.

Þrot verður frumsýnd hér á landi 20. júlí.

 

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR