Kvikmyndadeild LHÍ auglýsir eftir kennara

Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um starf háskólakennara í kvikmyndagerð með áherslu á leikstjórn, handritsgerð eða framleiðslu. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2022 og umsóknarfrestur er til og með 13. mars.

Segir á vef Listahákskólans:

Starfið felur í sér kennslu og stefnumótun um nám í kvikmyndalist og mun viðkomandi taka þátt í þróun náms sem heyrir undir svið kvikmyndalistar, sviðslista og tónlistar auk þess að vera þátttakandi í fræða- og fagsamfélagi Listaháskólans.

Starfshlutfall er 50% eða eftir samkomulagi allt að 100%.

Menntunar-, reynslu- og hæfniskröfur

Hæfi umsækjanda verður metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar við gerð umsóknar. Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar.

Leitað er eftir umsækjendum sem búa yfir:

    • Menntun í kvikmyndagerð á háskólastigi.
    • Meistaragráðu í kvikmyndagerð eða annarri meistaragráðu sem nýtist í starfi.
    • Samkvæmt reglum um veitingu akademískra starfa má í sérstökum tilfellum, þegar umsækjandi hefur að baki viðamikla starfsreynslu, meta feril hans til jafngildis formlegri menntun.
    • Sterkri faglegri sýn og starfsreynslu á sviði kvikmyndagerðar.
    • Reynslu af kennslu.
    • Góðri miðlunar-, samstarfs og samskiptahæfni.
    • Góðu valdi á töluðu og rituðu máli.

Skil á umsókn

Umsóknargögnum skal skila eigi síðar en 13. mars 2022 á netfangið starfsumsokn@lhi.is merkt: Háskólakennari í kvikmyndalist.

Í umsókn skal vera:

Ítarleg ferilskrá sem nær meðal annars yfir listrænan feril umsækjanda og kennslureynslu.
Staðfest afrit af prófskírteinum.
Greinargerð sem sýnir með hvaða hætti sérþekking umsækjanda nýtist og styrkir nám í kvikmyndalist á háskólastigi.
Nöfn aðila sem leita má til með umsagnir.
Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR