VERBÚÐ besta þáttaröðin á Series Mania

Sjónvarpsþáttaröðin Verbúð í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar, Björns Hlyns Haraldssonar og Maríu Reyndal var valin besta sjónvarpsþáttaröðin á Series Mania hátíðinni í Lille í Frakklandi í kvöld.

Hátíðin var stofnuð 2011 og er ein sú virtasta í Evrópu á sviði leikinna sjónvarpsþátta. Vesturport framleiðir þættina í samstarfi við RÚV, ARTE og Turbine Studios.

Þættirnar, sem eru átta, fjalla á dramatískan hátt um afleiðingar kvótakerfis fyrir lítið þorp en fyrsti þátturinn verður frumsýndur á RÚV á annan í jólum.

RÚV sagði frá.

HEIMILDruv.is
Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR