spot_img
HeimFréttirVerðlaunSELSHAMURINN fær tvenn verðlaun

SELSHAMURINN fær tvenn verðlaun

-

Nýverið hlaut stuttmynd Uglu Hauksdóttur, Selshamurinn, tvenn alþjóðleg verðlaun á kvikmyndahátíðum í Portúgal og á Ítalíu.

Á Leiria kvikmyndahátíðinni í Portúgal hlaut Selshamurinn verðlaunin „Best International Fiction“ og á kvikmyndahátíðinni Dieciminuti á Ítalíu hlaut myndin verðlaunin „Best Original Soundtrack“, en Herdís Stefánsdóttir samdi tónlist.

Síðan myndin var heimsfrumsýnd á Huesca alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni á Spáni árið 2020 hefur hún verið valin inn á fjölda hátíða út um allan heim, meðal annars Torino kvikmyndahátíðina á Ítalíu, alþjóðlegu kvikmyndahátíðina Diorama á Indlandi, og Norrænu kvikmyndadagana í Lübeck, Þýskalandi, auk þess að vera tilnefnd sem stuttmynd ársins á Edduverðlaununum 2021.

Selshamurinn er skrifuð og leikstýrt af Uglu Hauksdóttur og framleidd af Antoni Mána Svanssyni fyrir Join Motion Pictures. Myndin fjallar um hina fimm ára Sól sem býr með föður sínum í afskekktu húsi við hafið. Ímyndunarafl hennar tekst á flug í tómarúmi einmanalegra daga á meðan faðir hennar tekst á við tónsmíðar. Þegar Sól skynjar trega föður síns, sem er henni óskiljanlegur, finnur hún hugarró í gamalli íslenskri þjóðsögu. Með aðalhlutverk fara Björn Thors, Bríet Sóley Valgeirsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

ÞAÐ NÝJASTA Á KLAPPTRÉ

Fáðu nýjasta efnið á Klapptré í pósthólfið þitt tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

NÝJUSTU FÆRSLUR