Saumaklúbburinn er áfram í níunda sæti aðsóknarlistans eftir níundu sýningarhelgi.
Saumaklúbbinn sáu 190 gestir í vikunni en alls nemur aðsókn nú 18,185 gestum.
Skuggahverfið hefur fengið 270 gesti eftir áttundu helgi.
Alma hefur nú gengið í kvikmyndahúsum í 13 helgar og hafa alls 788 séð hana.
Aðsókn á íslenskar myndir 26. júlí - 1. ágúst 2021
| VIKUR | MYND | AÐSÓKN | ALLS (SÍÐAST) |
|---|---|---|---|
| 9 | Saumaklúbburinn | 190 | 18,185 (17,995) |
| 8 | Skuggahverfið | 2 | 270 (268) |
| 13 | Alma | 3 | 788 (785) |













