Nýstofnað Félag tæknifólks lætur í sér heyra

Félag sýningarmanna við kvikmyndahús, Félag kvikmyndagerðarmanna og Félag tæknifólks í rafiðnaði hafa tekið höndum saman um að mynda eitt stórt og sterkt félag saman, Félag tæknifólks (FTF). Félagið stendur nú fyrir kynningarherferð undir slagorðinu Ómissandi fólk.

Segir í kynningu:

Félag tæknifólks telur vel yfir 1000 félaga. Það heldur utan um félaga sína sem starfa í mörgum greinum á fjölmörgum vinnustöðum og gætir hagsmuna þeirra sem snúa að vinnuveitanda.

Félagið leggur sig fram um að styrkja félaga sína til vaxtar í sínum störfum með því að bjóða upp á endurmenntun sem þjónar þeim, á sínum vegum eða/og í samstarfi við aðrar menntastofnanir.

Félagið semur um kaup og kjör á vinnumarkaðnum fyrir félaga sína með Rafiðnaðarsambandi Íslands (RSÍ).

Félagið, með aðild að RSÍ, styrkir félaga sína út frá þeim reglum sem um sameiginlega sjóði sambandsins og aðildarfélaga þeirra gilda hverju sinni.

Félagar hafa fullan aðgang að orlofskerfi, afsláttarkerfi og öðrum sjóðum RSÍ auk viðburða sem RSÍ stendur fyrir.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR