Skilafrestur innsendinga vegna Edduverðlauna 2021 er liðinn og valnefndir eru að hefja störf. Tilefningar verða opinberaðar 19. mars næstkomandi.
Edduverðlaunin verða sýnd á RÚV 27. apríl og verður þátturinn með svipuðu sniði og síðast, ekki verður um beina útsendingu að ræða, vegna stöðunnar á faraldrinum.
Innsendingar jukust verulega í ár, eða um 20%. Alls voru innsend verk 146 að þessu sinni og 319 innsendingar vegna fagverðlauna. Til samanburðar voru send inn 121 verk og 266 fagverðlaun árið 2020.