Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi til breytinga á lögum 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi.
Frumvarpið felur í sér breytingar á lögunum sem viðbrögð við athugasemdum Ríkisendurskoðunar í skýrslu frá október 2019. Jafnframt framlengir frumvarpið gildistíma laganna til 31. desember 2025 og þannig endurgreiðslukerfið.
Breytingatillögurnar eru í nokkrum liðum og helstar þessar:
- Lagt er til að skilgreint verði betur hvers kyns kvikmynda- og sjónvarpsefni falli undir endurgreiðslukerfið.
- Krafa verði gerð um staðfestingu löggilts endurskoðanda á öllum kostnaði.
- Lagt er til að tilgreindur verði sá kostnaður sem ekki telst til framleiðslukostnaðar.
- Samstarf við embætti ríkisskattstjóra, aðkoma skattayfirvalda og umsýsla og þjónusta við nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
- Stuðningur frá ríkinu verði tilgreindur í kvikmynda- eða sjónvarpsefni.
- Íslandsstofa, sem kynnir endurgreiðslukerfið fyrir erlendum framleiðendum, fái aðgengi að kynningarefni.
Hagaðilar og almenningur er hvattur til að kynna sér drögin í samráðsgáttinni og gefa umsögn um málið, en frestur er til 8. janúar 2021. Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Að auki má benda á að í Kvikmyndastefnu til ársins 2030 er stefnt að endurskoðun endurgreiðslukerfisins sem mun miða að því að því að varðveita kosti þess en jafnframt þróa það á þann veg að það standist alþjóðlega samkeppni á hverjum tíma.