Amma Hófí og Síðasta veiðiferðin eru báðar að klára sitt farsæla skeið í kvikmyndahúsum.
549 sáu Ömmu Hófí í liðinni viku en alls hefur myndin fengið 21,133 gesti eftir níundu sýningarhelgi.
207 sáu Síðustu veiðiferðina í vikunni. Eftir 27. sýningarhelgi (þar af 21 helgi í sýningum) nemur heildarfjöldi gesta 35,206 manns.
ATH: Kvikmyndahúsin lokuðu þann 24. mars vegna kórónaveirufaraldursins og opnuðu aftur 4. maí.
Aðsókn á íslenskar myndir 31. ág. til 6. sept. 2020
VIKUR | MYND | AÐSÓKN | ALLS (SÍÐAST) |
---|---|---|---|
9 | Amma Hófí | 549 | 21,133 (20,584) |
27 | Síðasta veiðiferðin | 207 | 35,206 (34,999) |