[Stikla] AMMA HÓFÍ frumsýnd 10. júlí

Stikla gamanmyndarinnar Amma Hófí eftir Gunnar Björn Guðmundsson hefur litið dagsins ljós. Myndin verður frumsýnd 10. júlí.

Myndin fjallar um eldri borgararana Hófí (Edda Björgvinsdóttir) og Pétur (Laddi) sem eru olnbogabörn í kerfi sem hefur lítið gagn af þeim lengur. Þau eru orðin leið á aðbúnaðinum á elliheimilinu og ræna banka til að hafa efni á að kaupa sér litla íbúð.

Ýmis ljón eru í vegi þeirra og Hófí og Pétri lendir saman við harðasta handrukkara bæjarins og skósveina hans. Sem betur fer er erfitt að kenna gömlum hundum að sitja og Hófí og Pétur eru hörðustu glæpamenn elliheimilisins, þannig að þau eru ekkert á því að sitja að óþörfu.

Með helstu hlutverk fara Edda Björgvinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Sveppi, Steindi Jr, Víkingur Kristjánsson, Anna Svava Knútsdóttir, Gríma Kristjánsdóttir, Pétur Jóhann, Þorsteinn Guðmundsson og Gísli Örn Garðarsson. Markelsbræður, Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson framleiða.

Sjá nánar hér: Fyrsta stiklan úr Ömmu Hófí: Eldri borgarar taka málin í eigin hendur og ræna banka – Vísir

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR