Langt er síðan Klapptré skýrði frá því að verið væri að gera ástralska kvikmynd byggða á Hrútum Gríms Hákonarsonar. Stikla myndarinnar hefur nú litið dagsins ljós.
Myndin skartar þeim Michael Caton og Sam Neil í hlutverkum bræðranna sem Theódór Júlíusson og Sigurður Sigurjónsson léku í mynd Gríms.
Í áströlsku útgáfunni eru bræðurnir sauðfjárbændur í afskekktri ástralskri sveit og hafa, líkt og í íslensku myndinni, ekki talast við í fjörutíu ár. Þegar sjaldgæf veiki greinist í sauðfé annars þeirra setur það tilveruna í algjört uppnám.
Kvikmynd Gríms hlaut fjölda verðlauna jafnt hérlendis sem erlendis. Hún vann til 11 Edduverðlauna, þar á meðal sem besta mynd ársins og Un Certain Regard-verðlaunanna á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Sjá nánar hér: Fyrsta stiklan úr áströlsku útgáfunni af Hrútum