Bíóin munu opna aftur mánudaginn 4. maí þegar samkomutakmarkanir verða rýmkaðar. Þau hafa verið lokuð frá 22. mars.
Síðasta veiðiferðin eftir Markelsbræður heldur áfram í sýningum frá 4. maí en myndin var frumsýnd 6. mars og var á toppi aðsóknarlistans allan tímann meðan sýningar stóðu yfir.
Leyfilegt verður að hafa allt að 50 manns í hverjum sal og skal gætt tveggja metra reglu.