Tvær klippur úr þáttaröðinni Jarðarförin mín hafa verið opinberaðar. Í þáttaröðinni leikur Þórhallur Sigurðsson (Laddi) dauðvona mann sem ætlar að skipuleggja og vera viðstaddur sína eigin gala jarðarför. Öll þáttaröðin er væntanleg á morgun miðvikudaginn 8. apríl í Sjónvarp Símans Premium og fyrsti þáttur verður sýndur í opinni dagskrá á Páskadag í Sjónvarpi Símans.
Jarðarförin mín er ljúfsár en alvörugefin þáttaröð með Þórhalli Sigurðssyni í aðalhlutverki. Hún fjallar um mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun. Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skildi. Nú eru tvær vikur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða. Hann ákveður að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin gala jarðarför og vera sjálfur viðstaddur. Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar. Fyrrverandi eiginkonan, einkasonurinn og tengdadóttirin hafa lítinn skilning fyrir þessum áformum, hvað þá barnabarnið sem dýrkar afa sinn og getur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flækist málið enn frekar þegar ástin blómstrar á ný milli hans og fyrrverandi kærustu en hún er einmitt presturinn sem á að jarðsyngja hann.
Glassriver framleiðir en byggt er á hugmynd Jóns Gunnars Geirdal. Kristófer Dignus leikstýrir en handritshöfundar eru auk hans, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Jón Gunnar Geirdal, Ragnar Eyþórsson, Sóli Hólm og Baldvin Z.
Sjá nánar hér: Sjáðu Ladda í nýju hlutverki – Albumm.is!