Markelsbræður ræða ferilinn

Örn Marínó Arnarson og Þorkell Harðarson (mynd: RÚV).

Þeir Markelsbræður, Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson fara yfir ferilinn allt til Síðustu veiðiferðarinnar í ítarlegu spjalli við Atla Hergeirsson sem heldur úti hlaðvarpsþættinum Leikfangavélin.

Þátturinn er svo kynntur:

Kvikmyndagerðamennirnir Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson sem saman mynda tvíeykið Markelsbræður eru gestir þáttarins. Þeir eru mennirnir sem gerðu hina vinsælu og bráðfyndnu gamanmynd „Síðasta veiðiferðin“. Við skyggnumst á bakvið tjöldin við gerð hennar ásamt mun fleiru til en Markelsbræður hafa gert fjölmargar aðrar myndir. Þar má finna sumar afar áhugaverðar heimildamyndir eins og „Lónbúann“, „Trend Beacons“ og hina mögnuðu „Feathered Cocaine“ en við gerð þeirrar síðastnefndu fundu þeir „doltið“ sem allir voru að leita að en enginn vildi svo þegar uppi var staðið. Upphafið að samstarfi þeirra, allar myndirnar og gagnrýnin ásamt ISIS og Al-Qaeda í þessum afar fróðlega þætti.

Klapptré
Klapptré
Klapptré er sjálfstæður miðill sem birtir fréttir, viðhorf, gagnrýni og tölulegar upplýsingar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsbransann. Ritstjóri er Ásgrímur Sverrisson.

TENGT EFNI

NÝJUSTU FÆRSLUR